VIKA 43  - VÍMUVARNAVIKA


Hvað: 
Vika 43 er vettvangur félagasamtaka sem vilja leggja forvörnum lið og/eða hafa forvarnir að markmiði starfs síns, til þess að vekja athylgi á forvarnastarfi og áfengis- og vímuefnamálum:
- Skapa vettvang fyrir samstarf félagasamtaka um að vekja athygli á stefnumörkun í áfengis- og vímuefnamálum, einkum forvörnum.
- Varpa ljósi á viðfangsefni forvarna og það starf sem unnið er á vettvangi félagasamtaka.
- Vekja athygli landsmanna á mikilvægi forvarna, einkum forvörnum gagnvart börnum og unglingum.
- Virkja þekkingu, styrk og samstöðu grasrótarsamstarfs til eflingar forvarnastarfs.
 
Hvers vegna:
Neysla vímuefna raskar uppvexti og ógnar velferð margra barna. Sum bíða ævarandi tjón. Það er bitur reynsla foreldra og annarra aðstandenda að sjá barn sitt lenda í fjötrum vímuefnaneyslu og villast á brautir glæpa og ofbeldis. Það er átakanleg fórn sem snertir okkur öll.
 
Forvarnstarf gegn áfengis- og vímuefnaneyslu er liður í að skapa börnum þroskavænleg skilyrði. Með því að styðja börn og ungmenni í að hafna neyslu áfengis og annarra vímuefna er stuðlað að velferð þeirra og lífshamingju.
 
Í forvarnastarfi er lögð höfuðáhersla á að ná til barna og unglinga í ljósi þess að í æsku er lagður grunnur að framtíð hvers einstaklings. Þá mótast mikilvægar forsendur lífssýnar, þroska og heilbrigði síðar á ævinni. Ungt fólk er veikara fyrir gagnvart neyslu vímuefna en fullorðnir og rannsóknir sýna að því seinna sem ungt fólk byrjar neyslu áfengis og tóbaks því minni líkur eru á að það leiðist í neyslu vímuefna, hætti í skóla eða lendi í öðrum erfiðleikum. Þá verður að hafa í huga að börn og ungmenni eru berskjölduð fyrir áróðri og hvatningu til neyslu áfengis og annarra vímuefna. Með fræðslu, upplýsingastarfi og hvatningu til heilbrigðra lífshátta er leitast við að sporna gegn vímuefnaneyslu barna og ungmenna.




 


VIKA 43 2009 - dagskrá 

 


  


ÁSKORUN 2009    

 










Til foreldra:
VEIST ÞÚ HVAÐ
ER Í HÚFI?
Bæklingur PDF


HVAÐ ER Í HÚFI?

 























ÉG ætla að bíða
6 leiknar augl.:
 




VÍMUVARNAVIKAN | www.vvv.is  | vvv@forvarnir.is | sími 511 1588 | fax 511 1589  | Brautarholt 4a  | 105 Reykjavík