VVV 2005 – Yfirlýsing félagasamtaka

Komum í veg fyrir áfengis- og vímuefnaneyslu barna og ungmenna!   

Neysla áfengis og annarra vímuefna raskar uppvexti og ógnar velferð margra barna. Sum bíða ævarandi tjón. Það er bitur reynsla foreldra og annarra aðstandenda að sjá barn sitt lenda í fjötrum vímuefnaneyslu og villast á brautir glæpa og ofbeldis. Það er átakanleg fórn sem snertir okkur öll. 

Í æsku er lagður grunnur að framtíð hvers einstaklings. Þámótast mikilvægar forsendur lífssýnar, þroska og heilbrigðis síðar á ævinni. Börn og ungmenni eru berskjölduð fyrir áróðri og hvatningu til neyslu áfengis og annarra vímuefna.  Rannsóknir sýna að því seinna sem ungt fólk byrjar neyslu áfengis og tóbaks því minni líkur eru á að það leiðist í neyslu vímuefna, hætti í skóla eða lendi í öðrum erfiðleikum.  Höfum það í huga.

Tökum höndum saman um að skapa börnum þroskavænleg skilyrði.  Styðjum börn og ungmenni í að hafna neyslu áfengis og annarra vímuefna.  Látum velferð þeirra ráða við mörkun stefnu í áfengis- og vímuefnamálum.

Hagsmunir barna og ungmenna eiga að hafa forgang! 

Undirritað af

Bandalag íslenskra skáta        

Biskupsstofa           

Brautin – bindindisfélag ökumanna

Íþrótta- og ólympíusamband Íslands             

Félag íþrótta-, æskulýðs-, og tómstundafulltrúa

Heimili og skóli       

KFUM&K 

SAMFOK           

Krabbameinsfélag Reykjavíkur

Kvenfélagasamband Íslands   

Lionshreyfingin       

Samtök félagsmiðstöðva - SAMFÉS          

Samstarfsráð um forvarnir   

Samtök skólamanna um bindindisfræðslu

Barnahreyfing IOGT

ÍUT-forvarnasamtök

Ungmennahreyfing IOGT 

IOGT á Íslandi

Ungmennafélag Íslands   

Vímulaus æska/Foreldahús