Yfirskrift: Byrjunaraldur áfengisneyslu: Hvað er í húfi?
Forsendur: Rannsóknir sýna að því yngri sem börn hefja neyslu áfengis og annarra vímuefna þeim mun hættara er við að áfengi og önnur vímuefni valdi þeim erfiðleikum, bæði í bráð og lengd. Rannsóknir sýna að tengsl eru á milli ýmissa neikvæðra hliða áfengis- og vímuefnaneyslu og þess að hefja neyslu áfengis á unga aldri, s.s. að því fyrr sem neysla hefst þeim mun:
1) Meiri líkur eru á vandamálum í æsku, s.s. samskiptavanda við foreldra og fjölskyldu;
2) Meiri líkur eru á vandamálum tengdum námi og skólagöngu;
3) Meiri líkur eru á hegðunarvanda;
4) Meiri líkur eru á neyslu ólöglegra vímuefna;
5) Meiri líkur eru á misnotkun og mikilli og skaðlegri áfengisneyslu á fullorðinsaldri.
Á grundvelli þessara vitneskju er því mikil áhersla lögð á að börn og unglingar neyti ekki áfengis og annarra vímuefni og á þessu byggjast m.a. markmið heilbrigðisáætlunar og ýmis önnur stefnumörkun í áfengis- og vímuefnamálum.
Markmið: Varpa ljósi á tengsl upphafsaldurs áfengisneyslu og aukinnar áhættu á ýmsum vanda, s.s. neyslu annarra vímuefna. Vekja athygli á mikilvægi þess að stuðlað sé að því að börn og unglingar neyti ekki áfengis og ábyrgð alls samfélagsins í því skyni. Efla vitund og ásetning samfélagsins um að nauðsynlegt sé að hækka byrjunaraldur áfengisneyslu frá því sem nú er.
Markhópur: Foreldrar og uppalendur – einnig börn á unglingsaldri.
Samstarf: Áhersla er lögð á að virkja sem flesta félagasamtök til þátttöku í Vímuvarnaviku 2005. Eftirtalin samtök standa að vikunni: Bandalag íslenskra skáta, Biskupsstofa, Brautin – bindindisfélag ökumanna, Íþrótta- og ólympíusamband Íslands, Félag íþrótta-, æskulýðs-, og tómstundafulltrúa, Heimili og skóli, KFUM&K, Krabbameinsfélag Reykjavíkur, Kvenfélagasamband Íslands, Lionshreyfingin, Samtök félagsmiðstöðva -SAMFÉS, Samstarfsráð um forvarnir, Samtök skólamanna um bindindisfræðslu, Barnahreyfing IOGT, ÍUT-forvarnasamtök, Ungmennahreyfing IOGT, IOGT á Íslandi, Ungmennafélag Íslands og Vímulaus æska/Foreldahús.
Framkvæmd:
1) Yfirlýsing frá félagasamtökum
2) Vakningarátak í fjölmiðlum
3) Málþing
4) Kynning á forvarnastarfi og forvarnaverkefnum
5) Minningarathöfn um fórnarlömb vímuefnaneyslu
6) Skemmtidagskrá – óður til lífsins