Vika 43 sett í Þjóðleikhúsinu
![]() |
Vímuvarnavikan Vika 43 var formlega sett í gær í Þjóðleikhúsinu að viðstöddum nemendum frá Sjálandsskóla í Garðabæ, framáfólki í æskulýðs- og forvarnastarfi á Íslandi, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins Stefáni Eiríkssyni og ráðherra dóms- og mannréttindamála, Ögmundi Jónassyni. Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir bauð gesti velkomna í leikhús þjóðarinnar og fagnaði þessu samstarfi leikhússins og Vímuvarnavikunnar en forvarnaleikritið Hvað ef? er nú sýnt í Kassanum og er ætlað efri bekkjum grunnskóla. Nemendum er boðið á þessa sýningu í Kassanum í vetur en Vika 43 kostaði 10 fyrstu sýningarnar fyrir 1200 grunnskólanemendur í vímuvarnavikunni. Hildur Helga Gísladóttir, framkvæmdastjóri Kvenfélagasambands Íslands opnaði síðan formlega Viku 43 með því að lesa upp áskorun sem undirrituð er af öllum 22 þátttökusamtökum í þessu árlega forvarnaverkefni. Eftir opnunina var öllum boðið á frumsýningu á Hvað ef? (www.hvadef.is) í Kassanum.
VIKA 43 2010
Vika 43 er vettvangur félagasamtaka sem vilja leggja forvörnum lið og/eða hafa forvarnir að markmiði starfs síns, til þess að vekja athylgi á forvarnastarfi og áfengis- og vímuefnamálum:
- Skapa vettvang fyrir samstarf félagasamtaka um að vekja athygli á stefnumörkun í áfengis- og vímuefnamálum, einkum forvörnum.
- Varpa ljósi á viðfangsefni forvarna og það starf sem unnið er á vettvangi félagasamtaka.
- Vekja athygli landsmanna á mikilvægi forvarna, einkum forvörnum gagnvart börnum og unglingum.
- Virkja þekkingu, styrk og samstöðu grasrótarsamstarfs til eflingar forvarnastarfs.
ÞÁTTTAKA ÞJÓÐAR Í VÍMUVÖRNUM
Í Viku 43 er að þessu sinni minnt á nauðsyn samstöðu og samstarfs allra við að uppræta markaðssetningu vímuefna, sérstök athygli verður vakin á áróðri fyrir neyslu kannabisefna. Á heimasíðu vímuvarnavikunnar, www.vvv.is er að finna upplýsingar um dagskrá og viðburði Viku 43.
Skráningar á opnunardagskrá í Þjóðleikhúsinu 26. október: vika43@forvarnir.is
Skráningar á morgunverðarþing í Þjóðleikhúskjallara 28. október HÉR Dagskráin: www.naumattum.is
DAGSKRÁ
24. OKT. Vikan hefst
25. OKT. Kvennafrídagurinn, Vika 43 hvetur fólk til að taka þátt í deginum
26. OKT. kl. 15.15 Formleg opnun Viku 43 í Þjóðleikhúsinu
kl. 16.00 Frumsýning á HVAÐ EF? skemmtifræðsla,
í Kassanum (Þjóðleikhúsinu)
28. OKT. kl. 08.15-10.00 "þetta er bara gras"... morgunverðarfundur Viku 43
í Þjóðleikhúskjallaranum í samstarfi við NÁUM ÁTTUM.
Erindi koma frá lækni á fíkniefnageðdeild LHS, Lögreglustjóra
og Foreldrahúsi um áhrif og skaðsemi kannabis
26.- 29. OKT Leikritið HVAÐ EF? sýnt í kassanum fyrir nemendur grunnskóla,
unglingadeildum á Reykjavíkursvæðinu

